HAGNÝTAR HAGMÆLINGAR (HAG104M), Haust 2022.

Markmið þessa námskeiðs er að gera nemendur hæfa í að tjá sig með einföldum hætti um hversdagslegar spurningar, sem fram koma umræðum um hagmál. Tekin eru fyrir málefni líðandi stundar, svo sem vísitölur, fjármögnun húsnæðis og lánamarkaðir. Nemendur eru þjálfaðir í að gera einfaldar skriflegar skýrslur, þar sem efni er lýst í texta, töflum og myndum. Kynnt verða tæki til framsetningar á texta, töflum, myndum og heimildum. Einföld reiknitæki verða ennfremur kynnt. Þá verða ræddar ýmsar gildrur, sem sem varast ber við mat á hagrænum samböndum. Haustið 2022 verða ýmis atriði tengd líðandi stund tekin fyrir.

Kennari: Helgi Tómasson

Kennslubók:

Stuðst verður við 'Mastering Metrics' eftir J.D. Angrist og J-S. Pischke.

Kennari dreifir viðbótarefni.

Námsmat: Verkefni 100%

Ýmis hagnýt atriði (kennsluáætlun ofl.)