Gróf bráðabirgða kennsluáætlun:

Vika 1: Nokkur hagnýt forrit kynnt. Uppsetning á ritgerð og glærum með LaTeX. Lestur á gögnum inn í GRETL.

Vika 2-3: Hugleiðing um orsakasamband. Kafli 1 í Angrist/Pischke. Nemendafyrirlestrar (örstuttir) hefjast.

Vika 4-5: Ýmis atriði um gagnagreiningu og ályktanir (Angrist/Picke kaflar 2-5).

Vika 6-7: Ýmsar sjónhverfingar í gögnum. T.d tímaröðum, varðandi launamun kynja og tíðni hagsveiflna. (Efni sem kennari dreifir). Nemendur velja ritgerðarefni. Nemendur mega velja sér efni úr dægurmálum, t.d. varðandi gjaldeyrishöft, verðtryggingu, húsnæðismarkað, vaxtastefnu, gjaldmiðla, o.s.frv.

Vika 8-10: Ýmis atriði og hugtök um orsakasamband. Gestafyrirlesarar kynna ýmis efni.

Vika 11-12: Nemendur kynna ritgerðir sínar.



Hentugar skrár frá kennara og nemendum verða hér



Ýmis atriði



LaTeX er öflug ritvinnsla sem hentar vel til vísindalegrar vinnu með töflum, formúlum og heimildum. Auðvelt er að setja upp vísindalega text, grein, glæru-fyrirlestur með hjálpartólum eins texmaker. Heimildavinnsla verður mjög lipur með BibTeX og JabRef.

GRETL býður upp á auðvelda byrjun í gagnavinnslu.



Nokkrar tegundir forritunarmála og frjálsir ókeypis valkostir

Töflureiknir 

Gnumeric, Libre-Office

Valmyndadrifið hagrannsóknarforrit 

Gretl

Fylkjaforrit 

R, Octave, Scilab, Julia

Symbólísk stærðfræði 

WXMAXIMA, SAGE, o.s.frv.

Ýmis forritunarmál 

C++, Fortran, Python, Java, Perl etc. 

Ritvinnslur 

Latex,  Libre-Office , o.s.frv.