Hagnýtar hagmælingar (HAG104M), Haust 2014.


Markmið þessa námskeiðs er að gera nemendur hæfa í að tjá sig með einföldum hætti um hversdagslegar spurningar, sem fram koma umræðum um hagmál. Tekin eru fyrir málefni  líðandi stundar, svo sem vísitölur, fjármögnun húsnæðis og lánamarkaðir. Nemendur eru þjálfaðir í að gera einfaldar skriflegar skýrslur, þar sem efni er lýst í texta,  töflum og myndum. Kynnt verða tæki til framsetningar á texta, töflum, myndum og heimildum. Einföld reiknitæki verða ennfremur kynnt. Þá verða ræddar ýmsar gildrur, sem sem varast  ber við mat á hagrænum samböndum.

Kennari: Helgi Tómasson

Kennslubók: Stuðst verður við 'Macroeconomic Pattern and Stories' eftir E. Leamer.
Kennari dreifir viðbótarefni.


Námsmat: Verkefni 100%


Ýmis hagnýt atriði (kennsluáætlun ofl.)